Þjálfun og ráðgjöf

Sema Erla hefur um árabil unnið að forvörnum og inngripi í samskiptavanda, einelti, fordóma, hatursorðræðu, ofbeldi og aðra óæskilega hegðun á meðal barna og ungmenna, á vettvangi skóla og frístundastarfs, íþrótta- og tómstunda og annars staðar þar sem hópar koma saman.

Í slíkri vinnu leggur Sema Erla áherslu á heildrænar aðferðir fyrir börn og ungmenni, starfsfólk og sjálfboðaliða, forsjáraðila og aðra viðeigandi aðila með það að markmiði að stuðla að vellíðan og farsæld allra. Einnig er lögð áhersla á hlutlausa ráðgjöf og vinnu með einstaklingum, sem geta verið mögulegir þolendur, gerendur, áhorfendur og aðstandendur, sem og hópnum í heild sinni og starfsfólki, allt eftir því hvað á við hverju sinni.

Slík vinna getur einnig falið í sér námskeið og þjálfun fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða, vinnustofur, rannsóknir og kannanir, stefnumótun, þróun á áætlunum og verkferlum, stefnum og siðareglum og þjálfun í aðferðum og notkun á verkfærum.

Í allri sinni vinnu leggur Sema Erla áherslu á nýjustu rannsóknir, kenningar og gagnreyndar aðferðir.

Hafa samband
Rannsóknagátt HÍ HÍ Starfsfólk