Hatursorðræða

Hatursorðræða

Hatursorðræða er ekki nýtt fyrirbæri og í flestum samfélögum má finna einhverja af mörgum birtingarmyndum hatursorðræðu í einhverju mæli. Hatursorðræða er samfélagsmein sem getur haft alvarlegar afleiðingar ef hún er látin óáreitt. Hún er notuð til þess að niðurlægja einstaklinga, gera lítið úr persónu þeirra og brjóta þá niður. Í hvert skipti sem hatursorðræða er látin óáreitt kostar hún einhvern hluta af þeim sjálfum, sjálfsmynd þeirra og hluta af sálarlífi þeirra.

Rannsóknir benda til þess að hatursorðræða fari vaxandi og að hatursglæpum fjölgi. Nýlegar rannsóknir benda til þess að börn og ungmenni séu sérstaklega berskjölduð gagnvart hatursorðræðu og þá sérstaklega hatursorðræðu á netinu. Margt bendir til þess að hatursorðræða sé orðin hluti af orðræðu barna og ungmenna og daglegu lífi þeirra.

Vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem hatursorðræða getur haft á einstaklinga, hópa og samfélagið í heild sinni er mikilvægt að sporna gegn því að börn og ungmenni tileinki sér slíka hegðun og að fólk viti hvernig á að bregðast við hatursorðræðu.

Á þessu námskeiði er fjallað um meiðandi og hættulega orðræðu, hatursorðræðu, hvar og hvernig hún birtist, afleiðingar hennar og hvað sé til ráða.

Á meðal þeirra spurninga sem velt er upp eru:

  • Hvað er hatursorðræða?
  • Hvað eru hatursglæpir?
  • Hverjar eru birtingarmyndir hatursorðræðu?
  • Hverjar eru afleiðingar hatursorðræðu?
  • Hvernig er hægt að koma í veg fyrir hatursorðræðu á meðal barna og ungmenna?
  • Hvernig á ég að bregðast við hatursorðræðu?

Fyrir hverja er námskeiðið?

Starfsfólk og stjórnendur í skóla- og frístundastarfi, íþrótta- og tómstundastarfi og aðra sem starfa með börnum og ungmennum. Börn, ungmenni, foreldra/forsjáraðila og aðra áhugasama. Námskeiðin eru ávallt sérsniðin að hverjum hópi.

Á námskeiðinu er ávallt stuðst við nýjustu rannsóknir, kenningar og gagnreyndar aðferðir. Á þessu námskeiði er einnig tengt við persónulega reynslu af hatursorðræðu og hatursglæpum.

Athugið að hægt er að fá námskeið sem fjallar um hatursorðræðu í víðu samhengi eða námskeið sem fjallar sérstaklega um börn og ungmenni í því samhengi.

Bóka
Hafa samband
Rannsóknagátt HÍ HÍ Starfsfólk