Ungt fólk og öfgahyggja
Ungt fólk og öfgahyggja
Öfgahyggja (e. extremism) er áhyggjuefni um allan heim og að sumra mati ein helsta ógnin við öryggi, stöðugleika og velmegun þjóðríkja og alþjóðasamfélagsins. Er það fyrst og fremst vegna tengsla öfgahyggju við ofbeldi og vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem öfgahyggja getur haft á einstaklinga, hópa fólks og samfélagið í heild sinni.
Á síðustu árum hefur öfgahyggja farið vaxandi víða um heim og rannsóknir benda til þess að ungt fólk í Evrópu sé í auknum mæli að tileinka sér ofbeldisfulla öfgahyggju (e. violent extremism) og ganga til liðs við ofbeldis- og öfgahópa. Rannsóknir benda einnig til þess að þau sem aðhyllast öfgafullar hugmyndir og viðhorf séu sífellt að verða yngri. Vegna þessarar þróunar er ungt fólk og unglingsárin í dag skilgreind sem sérstakur áhættuhópur fyrir ofbeldisfulla öfgahyggju.
Öfgahyggja getur tekið á sig margar birtingarmyndir og er ekki bundin við ákveðna einstaklinga eða hópa fólks, ákveðnar hugmyndir eða skoðanir, trú, menningu, land eða samhengi. Hún getur einkennst af útlendingaandúð, kvenfyrirlitningu, fordómum gegn hinseginsamfélaginu og hún getur verið trúarlega innblásin og/eða snúist í kringum ákveðinn málstað.
Mikilvægt er að leggja aukna áherslu á forvarnir gegn öfgahyggju og ofbeldi á meðal ungs fólks og veita fólki sem starfar með börnum og ungmennum nauðsynlega fræðslu og þjálfun svo þeir geti gripið inn í með viðeigandi hætti þegar vísbendingar eru til staðar um að börn og ungt fólk aðhyllist öfgafullar hugmyndir og skoðanir og hafi jafnvel gengið til liðs við ofbeldis- og öfgahópa.
Á meðal þeirra spurninga sem velt er upp eru:
- Hvað er öfgahyggja?
- Hverjar eru birtingarmyndir öfgahyggju? Hvernig birtist hún í íslensku samhengi?
- Hver aðhyllast öfgahyggju?
- Hvers vegna gengur ungt fólk til liðs við ofbeldis- og öfgahópa?
- Hvaða þættir geta ýtt undir eða komið í veg fyrir öfgahyggju á meðal barna og ungmenna?
- Hvaða vísbendingar gefa til kynna að einstaklingur aðhyllist öfgahyggju?
- Hvaða forvarnir virka gegn öfgahyggju?
- Hvernig á að grípa inn í öfgahyggju á meðal ungs fólks?
Fyrir hverja er námskeiðið?
Starfsfólk og stjórnendur í skóla- og frístundastarfi, íþrótta- og tómstundastarfi og aðra sem starfa með börnum og ungmennum. Börn, ungmenni, foreldra/forsjáraðila og aðra áhugasama. Námskeiðin eru ávallt sérsniðin að hverjum hópi.
Á námskeiðinu er ávallt stuðst við nýjustu rannsóknir, kenningar og gagnreyndar aðferðir.
Bóka