top of page

Ungt fólk og kvenfyrirlitning á netinu

FORVARNIR OG INNGRIP

Rannsókn á reynslu og upplifun starfsfólks á vettvangi frítímans af kvenfyrirlitningu á netinu og áhrifum slíks á samfélög ungs fólks

óskað eftir þátttakendum fyrir rýnihópaviðtöl 

Viðmælendur

Við leitum að þátttakendum fyrir rýnihópaviðtöl sem eru hluti af samevrópskri rannsókn sem snýr að áhrifum internetsins á viðhorf ungs fólks til málefna kynjanna, með sérstaka áherslu á kvenfyrirlitningu á netinu og áhrif hennar.

Rýnihópar eru eigindleg rannsóknaraðferð sem byggist á umræðum 6-8 einstaklinga í hóp um ákveðið málefni. Með rýniviðtölunum viljum við  reyna að fá betri innsýn í: 

  • reynslu þína og upplifun af áhrifum öfgafullrar kvenfyrirlitningar á netinu á samfélög ungs fólks  

  • hvaða aðferðir og úrræði þú notar í starfi þínu til þess að takast á við áhrif kvenfyrirlitningar á netinu 

  • hvaða stuðning eða verkfæri þú telur að þig vanti til að efla heilbrigð viðhorf til kynjanna hjá ungu fólki  

 

Við óskum eftir því að komast í samband við: 

  • einstaklinga sem starfa reglulega og með beinum hætti með ungu fólki á aldrinum 10 – 16 ára vettvangi frítímans, annað hvort í launuðu starfi eða í sjálfboðastarfi til lengri tíma 

  • einstaklinga sem eiga í daglegum samskiptum við ungt fólk á aldrinum 10 – 16 ára í gegnum starf sitt.

 

Í hverjum rýnihóp verða 5–8 þátttakendur og viðtalið tekur um 90–120 mínútur .
 

Markmiðið með þessum hluta rannsóknarinnar að varpa ljósi á og skilja reynslu og upplifun starfsfólks  á vettvangi frítímans af áhrifum öfgafullrar kvenfyrirlitningar á netinu, hvaða úrræði og aðferðir þeir nýta í dag til þess að takast á við slíkt, og hvaða verkfæri þeir telja sig þurfa til þess stuðla að heilbrigðari viðhorfum til kynjanna á meðal ungmenna. 

Viltu taka þátt eða fá frekari upplýsingar? 

Hægt er að skrá áhuga um þátttöku með því að smella hér.

Tekið er á móti skráningum til lok dags 1. maí 2026. Haft verður samband við alla sem skrá sig. 

Nánari upplýsingar um rannsóknina veita ábyrgðaraðilar rannsóknarinnar á Íslandi.

fordómar og einelti

SYNERGY (Synchronize Evidence and Practice to Prevent Misogyny Among Youth) er þriggja árarannsóknarverkefni sem miðar að því að efla hæfni þeirra sem vinna með ungu fólki til að stuðla að jafnrétti kynjanna á tímum aukinna áhrifa kvenfyrirlitningar á netinu. Verkefnið tengir saman rannsóknir, starf á vettvangi og stefnumótun með því að kalla fram reynslu þeirra sem starfa með ungu fólki, varpa ljósi á árangursríkar aðferðir og þróa ný verkfæri fyrir vettvang frítímans í samstarfi við fagfólk og ungt fólk. Verkefnið er samstarfsverkefni Íslands, Eistlands, Hollands og Svíþjóðar og er styrkt af Erasmus+.

Rannsakendur og ábyrgðaraðilar verkefnisins á Íslandi eru Sema Erla Serdaroglu, aðjúnkt á Menntavísindasviði HÍ og Benedikta Björg Sörensen Valtýsdóttir, aðjúnkt á Menntavísindasviði HÍ. Hægt er að fá nánari upplýsingar um verkefnið með því að hafa samband við þær.

bottom of page